
4.1K
Downloads
13
Episodes
Bókahillan er hlaðvarp frá Forlaginu um bækur, höfunda, lestur og menningu. Þar fá sögur, hugmyndir og samtöl að njóta sín.
Episodes

Jul 15, 2026
Jul 15, 2026
35 min
Stjörnu-Sævar mætir í spjall til Villa Neto!
Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir, sólmyrkva og ýmislegt annað sem vekur forvitni. Einnig fara þeir yfir hvernig best er að undirbúa sig fyrir sólmyrkva, hvernig fylgjast á með þeim á öruggan hátt og tilurð bókarinnar Sólmyrkvar.
Sólmyrkvar er ný bók eftir Sævar Helga Bragason með myndskreytingum Elíasar Rúna. Með hverju eintaki fylgja sólmyrkvagleraugu.

Jun 11, 2026
Jun 11, 2026
41 min
Auður Jónsdóttir rithöfundur og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona ræða Sölku Völku eftir Halldór Laxness – eitt af áhrifamestu verkum íslenskra bókmennta.
Í þessum tveimur þáttum kafa þær ofan í söguna, persónurnar, samfélagið sem hún lýsir og hvers vegna Salka Valka á enn jafn sterkt erindi við lesendur í dag.
Unnur Ösp hefur fært Sölku Völku á svið í nýrri leikgerð sem hún samdi sjálf og flytur, og saman ræða þær hvernig verkið lifir áfram í bókmenntum, leikhúsi og menningu okkar. Þær fara um víðan völl og ræða Halldór Laxness, listirnar og lífið sjálft í hlýlegu og persónulegu samtali.
Þetta er seinni þáttur af tveimur um Sölku Völku.

Jun 3, 2026
Jun 3, 2026
46 min
Auður Jónsdóttir rithöfundur og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona ræða Sölku Völku eftir Halldór Laxness – eitt af áhrifamestu verkum íslenskra bókmennta.
Í þessum tveimur þáttum kafa þær ofan í söguna, persónurnar, samfélagið sem hún lýsir og hvers vegna Salka Valka á enn jafn sterkt erindi við lesendur í dag.
Unnur Ösp hefur fært Sölku Völku á svið í nýrri leikgerð sem hún samdi sjálf og flytur, og saman ræða þær hvernig verkið lifir áfram í bókmenntum, leikhúsi og menningu okkar. Þær fara um víðan völl og ræða Halldór Laxness, listirnar og lífið sjálft í hlýlegu og persónulegu samtali.
Þetta er fyrri þáttur af tveimur um Sölku Völku.

Dec 21, 2021
Dec 21, 2021
54 min
Í tíunda þætti segir Hallgrímur Helgason frá öðru bindinu í Segulfjarðarepík sinni um síldarárin miklu, 60 kíló af kjaftshöggum, og talar almennt um skrif, lestur og listsköpun. Hann segist vera að gæla við að skrifa heilan „sextett“ af Segulfjarðarbókum. Áslaug Jónsdóttir, Ólafur Gunnar Guðlaugsson og Rut Guðnadóttir komu svo í „Kryddsíld Bókahússins“, hámuðu í sig síld og kæstan dreka og ræddu skrímsli, furður og yfirnáttúrulegheit í barna- og unglingabókum. Öll voru þau að senda frá sér nýjar bækur, Áslaug skrímslabókina Skrímslaleikur, Ólafur Gunnar ungmennasöguna Ljósberi og Rut Guðnadóttir ungmennabókina Drekar, drama og meira í þeim dúr.

Dec 17, 2021
Dec 17, 2021
1 hr 23 sec
Gestir Sverris í níunda þætti eru Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir sem gaf á dögunum út hina hugljúfu og ákaflega vel skrifuðu minningasögu Ilmreyr; Hólmfríður Matthíasdóttir, oft kölluð Úa, sem er útgáfustjóri Forlagsins og hugar vakin og sofin að því að ilmandi nýjar bækur rati til landsmanna; loks leit inn í Bókahúsið Gunnar Theódór Eggertsson sem skrifað hefur fyrsta bindið í Furðufjalli, skemmtilegri ævintýrasögu fyrir krakka – fyrsta bindið nefnist Nornaseiður.

Dec 10, 2021
Dec 10, 2021
1 hr 6 min
Gestir Sverris í áttunda þætti eru Eliza Reid, sem hefur skrifað hina áhugaverðu og skemmtilegu Sprakkar, bók um íslenska kvenskörunga samtímans; Benný Sif Ísleifsdóttir sem rabbaði um ógleðiskók, sveitaböll og afar líflega skáldsögu sína Djúpið; loks skaust Sverrir í ræktarsal Bókahússins og svitnaði þar ærlega á hamstrahjóli ásamt hinum síhressu kynningar- og markaðsstýrum Forlagsins, þeim Guðrúnu Norðfjörð og Emblu Ýri Teitsdóttur, sem ræddu fjölbreytileg störf sín við að koma bókum Forlagsins til lesenda úti um land allt.

Dec 3, 2021
Dec 3, 2021
1 hr 20 min
Gestir Sverris í í sjöunda þætti Bókahússins eru tvíeykið taumlausa Valgerður Benediktsdóttir og Kolbrún Þóra Eiríksdóttir sem eru potturinn og pannan í réttindastofu Forlagsins; Þorgrímur Þráinsson sem miðlar sinni skemmtilega hvetjandi og jákvæðu lífsspeki í Verum ástfangin af lífinu og sendir einnig frá sér ungmennabókina Tunglið, tunglið taktu mig nú í haust; loks reka inn nefið hin hæfileikaríku systkini Sigrún Eldjárn og Þórarinn Eldjárn en þau sendu frá sér myndskreytta ljóðabók, Rím og Roms fyrr á árinu, auk þess Sigrún á svo barnabókina Rauð viðvörun í jólabókaflóðinu og Þórarinn smásagnasafnið Umfjöllun. Fjörugur og fjölbreyttur þáttur!

Nov 26, 2021
Nov 26, 2021
1 hr 11 min
Sverrir Norland leiðir gesti um töfraveröld Bókahússins. Gestir hans í sjötta þætti eru Eiríkur Örn Norðdahl sem var að gefa út stórsnjalla skáldsögu sem nefnist Einlægur Önd; ljóðskáldin mælsku Eydís Blöndal og Þórdís Helgadóttir sem sendu á dögunum frá sér ljóðabækurnar Ég brotna 100% niður (Eydís) og Tanntaka (Þórdís); og loks hinn andríki Sævar Helgi Bragason, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, en hann gaf nýlega út léttlestrarbókina Sólkerfið og ferðaðist af því tilefni vítt og breitt um víðáttur alheimsins með Sverri. Það er líf og fjör í Bókahúsinu þessa vikuna.

Nov 19, 2021
Nov 19, 2021
1 hr 22 min
Sverrir Norland er gestgjafi í Bókahúsinu. Gestir hans í fimmta þætti eru Eiríkur Bergmann, sem ræddi nýja bók sína Þjóðarávarpið í stórfróðlegu spjalli sem snerti á þjóðernishugmyndum, popúlisma, upplýsingaóreiðu og ótal öðru; Linda Ólafsdóttir teiknari og Margrét Tryggvadóttir rithöfundur en þær sendu nýlega frá sér hið fallega samvinnuverkefni Reykjavík barnanna auk þess sem Margrét gaf fyrr á árinu út verðlaunabókina Sterk; loks ræddi Elín Edda Pálsdóttir, verkefnastjóri hjá Forlaginu, við Sverri um þau fjölmörgu horn sem hún hefur í að líta á kontórnum, m.a. um þau sjónarmið sem ráða för þegar velja á erlendar bækur til útgáfu. Fjölbreyttur og skemmtilegur þáttur!

Nov 12, 2021
Nov 12, 2021
55 min
Sverrir Norland leiðir hlustendur um undraveröld Bókahússins. Gestir hans í fjórða þætti eru Hildur Knútsdóttir, sem hræddi úr Sverri líftóruna með nýrri hrollvekju sinni, Myrkrið á milli stjarnanna; Sindri Freyr Steinsson, sem er sérlegur hljóðbókari Forlagsins og ræddi af áhuga og þekkingu um hljóðbækur sem njóta sívaxandi vinsælda þessi misserin; loks leit inn í Bókahúsið Snæbjörn Arngrímsson, sem er margreyndur útgefandi og svolítið þjakaður rithöfundur sjálfur, að eigin sögn, en hann var að botna barnabókaþríleik sinn með hinni leikglöðu og skemmtilegu Handbók gullgrafarans. Stórskemmtilegur og fjölbreyttur þáttur!
